Beint í efni

Íbúðafélag Visku og FÍN

Húsnæði fyrir þig

Íbúðafélag Visku og FÍN

Viska og FÍN hafa stofnað óhagnaðardrifið íbúðafélag. Hægt er að skrá sig á biðlista hér á þessari síðu. Opið verður fyrir skráningu til 31. desember 2026.

Biðlisti

Biðlisti

Fylltu út formið hér fyrir neðan og skráðu þig á biðlistann.

Persónuupplýsingar

Stéttarfélagsaðild

Stéttarfélag*

Fjöldi svefnherbergja í íbúð

Fjöldi svefnherbergja*

Æskileg staðsetning íbúðar

    Skilmálar

    Ég staðfesti hér með að hafa lesið skilmála um eigna- og tekjumörk sem gilda um félagslegar leiguíbúðir. Ég geri mér jafnframt grein fyrir því að farið verður fram á staðfestingu á þessum upplýsingum ef úthlutun á íbúð mun eiga sér stað.

    Um félagið

    • Stéttarfélögin Viska og FÍN stofnuðu óhagnaðardrifið íbúðafélag 27. maí 2026. Félagið starfar samkvæmt lögum um almennar íbúðir og er markmið félagsins að byggja eða kaupa, eiga og hafa umsjón með rekstri og viðhaldi íbúða fyrir félagsfólk Visku og FÍN sem uppfylla skilyrði um leigu.

      Eitt af fyrstu skrefum í þessari uppbyggingu er að opna biðlista fyrir félagsfólk sem hefur áhuga á að leigja af félaginu, til að meta þarfir félagsfólks á stærð og staðsetningu húsnæðis.

      Stjórn félagsins skipa Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir formaður, Þorkell Heiðarsson varaformaður, Snorri Páll Blöndal gjaldkeri, Bragi Bergsson og Gerður Jónsdóttir. Stjórn hefur mikinn hug á að vinna hratt og vel að uppbyggingu félagsins og að byggja upp fjölbreyttan kost húsnæðis fyrir félagsfólk, bæði að kaupa íbúðir sem standa tómar og vinna að eigin uppbyggingu.

    • Leiga

      Íbúðafélag Visku og FÍN starfar samkvæmt lögum um almennar íbúðir. Í lögunum eru tilgreind tekju-og eignamörk ásamt viðmiði um  greiðslubyrði leigu.

      Tekju- og eignamörk fyrir árið 2026

      Tekjur leigjenda almennra íbúða skulu ekki nema hærri fjárhæð en:

      9.138.000 kr. á ári fyrir hvern einstakling eða 761.500 kr. á mánuði.
      13.500.000 kr. á ári fyrir hjón og sambúðarfólk eða 1.125.000 kr. á mánuði.
      2.254.000 kr. á ári fyrir hvert barn eða ungmenni að 20 ára aldri sem býr á heimilinu eða 187.833 kr. á mánuði.

      Heildareign skal ekki nema hærri fjárhæð en 9.874.000 kr.

      Leiguverð

      Miðað er við að greiðslubyrði leigu fari ekki yfir 25% af heildartekjum leigjenda að teknu tilliti til húsnæðisbóta.

      Úthlutun

      Gert er ráð fyrir að fyrsta úthlutun hjá félaginu verði á árinu 2027 og mun íbúðum verða úthlutað eftir röð félagsfólks á biðlista félagsins.  Opið er fyrir skráningu á biðlista til 31. desember 2026, og verður umsóknum raðað í númeraröð 15. janúar 2027 með slembiröðun sem verður framkvæmd með viðurkenndum aðferðum.

    Fréttir